notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Dagur þrjú

Rokkurró

Dagur þrjú

Sólargeislar brennandi
sækja að mér.
Loftið rykmettað kitlar vitin.
Ekkert í sjónmáli
nema einsemdin.

Tíminn er sem gróið tré
hreyfist aldrei.
Skýtur rótum sínum fast í mig.
Ég hugsa bara um
að komast burt.

Langur dagur líður hægt,
loksins búinn.
Kuldinn umlykur mig,
hægir hugsun.
Að lokum lognast út
við dauðans dyr.

Værum blundi vakna af,
nýr dagur.
Veruleikinn blasir við,
ég er alein.
En áfram tóri ég
og dagana tel.

Alein í eyðimörk...

Tracker