notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Kvaðning

Skálmöld

Kvaðning

Ligg ég eftir langa drauma
Liggur stirður, hugur sljór
Harið finn ég kröftugt krauma
Kreistir hefnd ef fyrrum sór
Heiðin býr að blindum
Horfi ég mót svörtum tindum
Hel býr þar í mörgum myndum
Myrkur, kuldi ís og snjór

Heljarsál af himnum steyptist
Hafði af mér bú og menn
Hatrið inn í hugann geyptist
Heldur mér á lífi enn
Fleyjum þínum feigðin grandi
Finn ég þig á sjó og landi
Kem ég til þín forni fjandi
Fundir okkar nálgast senn

Morgunsól á miðri heiði
Minningarnar sækja á
Mikil er og römm sú reiði
Rífur sárin hatrið þá
Eitt sinn átti fljóð að finna
Sem fallig gætti barna minna
En núna hef ég verk að vinna
Vega blóðga, stinga' og flá

Höldum nú á feigðarinnar fund
þEtta ferðalag mun telja okkar daga
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar
Höldum nú á feigðarinnar fund
þEtta ferðalag er köllun vor og saga
Vaskir menn á vígamóðri stund
Og Valhöll bíður okkar allra þá

Discografia Tracker