notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Váli

Skálmöld

Váli

Sól kemur upp og sigur er unninn,
Sit ég við brunninn
Brynhildi hjá og bíð þess er kemur.
BarðI á þremur,
þVí er ég orðinn marktækur maður,
Mjög er ég glaður.
Hvernig skal greitt og hver hefur valdið?
Hvert verður gjaldið?

Áfram!
Birtist mér lævís og lifandi sála.
Áfram!
Loki nú umbreytir syninum vála.
Áfram!
Vargur af svefninum vaknar.
Áfram!
Váli, hann blóðbragðsins saknar.

þEtta er borgun fyrir minn bata,
Brynhildi glata.
Mitt eigið líf að launum ég myndi
Láta í skyndi.
Birtast í fjarska, bíða og voka
Börnin hans loka.
Trylltur er váli, tennurnar sterkar
Tæta upp kverkar.

Áfram!
þEtta er lífið sem þótti mér kærast.
Áfram!
þJáningarhljóðin í aukana færast.
Áfram!
Innyflin rífur og ristir.
Áfram!
Ró, litla systir.

Einn skal vera undir herðum,
Eyðileggja hana verðum.
Annar liggur undir lendum,
Ljót sú kvöl er henni sendum.
þRiðja höfum undir hnjánum,
Hún mun ekki fylgja dánum.
Blæðandi, við bindum, meyna
Brynhildi á hvassa steina.

Vægðarlaus rífur nú hana á hol,
Horfinn er neistinn og brynhildar þol.
Sárin öll fossa og sjóðheitur dreyr
Seytlar til jarðar, en hún ekki deyr.
Hjálparlaus álengdar horfi ég á.
Hún er öll blóðrisa, marin og blá.
Kallar svo nafn mitt, það nístir og sker,
Náföla andlitið sýnir hún mér.
Bróður sinn grátandi síðastan sér.
Systir mín litla, hvað gerðI ég þér?

Kvalin að eilífu kveðjist þIð nú,
Loki þín gætir, brynhildur.
Sargast öll grjótin í sárin þín þrjú.
Loki þín gætir, brynhildur.
Enginn mun hlusta ´aekkanna sog,
Loki þín gætir, brynhildur.
Bróðir þinn seldi víst sál þína og
Loki þín gætir, brynhildur.

Discografia Tracker