notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Nón

Sólstafir

Nón

Sólbrot yfir nátthaga
læðist sifji nætur, stelur minni sálarró
Þögnin þung sem blóð
brestur tónn eitt sinn fagur
Kyrrð í vetrarríki
Myrkrið mýkir glætan gul
gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný
nóttin þung sem blý
Fönnin kæfir sumarilm
Vetur tekur yfir
Vonin kom með vorinu
en lifði ekki lengi hér á Góumánuðum
dó í ánauðum
stoltið drap þá veiku von
Kyrrð í vetrarríki
Rökkvar yfir lífi okkar
úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin
hjartans vorboðinn
nú grafin er í fönn
Vetur tekur yfir
Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi
dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum
Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig?
Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn?
Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum
né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið
Drápu niður fæti illar draumfarir
Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð

Discografia Tracker